31.07.2006 14:56:46 / sandra

Bloggar.is

Ákvað að fylgja Binnu eftir og opna mína eigin síðu á Bloggar.is.

slóðin er smt.bloggar.is.

Endilega kíkjið við:haha:

Kveðja Sandra


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 11:47:30 / sandra

Síðastu dagarnir!!!!

Já nú fer að líða að enda sumarsfrí og að verða síðasti sjens að gera eitthvað að viti:D Held að það verði fínt að komast aftur í vinnuna og fá reglu á hlutina, þó að það sé allgjört snilld að gera ekki neitt, sofa út og hafa það gott er það ekki gaman til lengdar;)

Renndum til Húsavíkur á laugardagskvöldið síðasta allveg svona óvænt og var það þvílíkt gaman. Rósa hringdi í mig kl 10 um kvöldið og sagði mér að allt liði væri það í útilegu og meira að seigja að hún Dísa mín væri í útileigu og það varð maður nú að sjá með eigin augum, svo að við brunuðum til þeirra og vorum ekki að koma heim fyrr en rúmlega fjögur um nóttina;) Alltaf skemmtilegast svona óvænt:haha:

Erum búin að fara tvo síðustu sunnudaga í fjórhjólarúnt. Annan daginn fórum við út í Flateyjardal og keyrðum allveg út að sjó og bara allar slóðir sem við fundum, skoðuðum öll húsin og svo rústir, rosalega gaman allgjör náttúruparadís:haha: Hin ferðin var svo í gær og skelltum við okkur út í fjörður og allveg út af sjó og ekki var þetta nú verri ferð. Á leiðinni út eftir þegar við vorum að fara yfir alla lækina passaði ég mig á að setja fæturnar upp og Hörri keyrði bara rólega yfir svo að við yrðum ekki blaut,en á heimleiðinni kom einhver púki í hann og hann brunaði yfir einn lækinn og fengum allt vatnið yfir okkur svo að það var ekki aftur snúið:haha: allir lækirnir voru teknir á þvílíkri siglingu og komum við allveg rennandi blaut heim allgjör snilld:D

Erum svo að fara í veiði í fjörðum á morgun með allri fjölskyldunni minni og þá er sumarfríð búið, byrja að vinna aftur á miðvikdudaginn;)

Þangað til næst:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 13:33:41 / sandra

Leti leti!!!!!!!!

úff er að deyja úr leti þessa dagana. Tekur á að vera í sumarfríi, nenni ekki neinu er allveg að fá nóg af þessu8| Einu ljósi punkturinn í þessu núna er að fá að sofa út, það er fínt enda geri ég nóg af því:haha:

Fór á miðvikudaginn í heimskókn til Jónkó minnar og skoðaði hana Töru Sól og hún er ekkert smá mikill engill, allgjör dúlla:D Það liggur við að það hafi heyrst smá eggjarhljóð8| nei kannski ekki alveg:haha: Hlakka geðveikt til að kíkja aftur á hana þegar þær mæðgur koma heim og fá að knúsa hana aðeins:D

En allavega er þetta 21. dagurinn minn í sumar fríi og ég á alveg 12 eftir, vá veit ekki alveg hvernig ég á að þrauka þetta8| er búin að afreka að fara í eina útilegu og eitt litið ættarmót sem var geðveikt gaman, já og líka skreppa suður í 2 heila daga;) annars hef ég bara verið heima með snúlluni minni og spilað svolítið golf. Hörri er búinn að vera á kafi í vinnu allan tíma svo að ekki hefur gefist mikill tími fyrir ferðalög, en það kemur víst sumar eftir þetta sumar vonandi;)

Helgin!!!!!!!! já loksins heil pabbahelgi núna, búið að vera svolitill ruglingur á þessu hjá okkur, hef alltaf verið að fá hana lánaða á pabbahelgunum svo að nú fyrst í held ég 4 eða 5 helgar erum við tvö ein í kotinu:haha: Stefnan var tekin á útileigu með vinnunni hans Hörra en ákváðum að vera bara heima og hafa það kósý, skreppa kannski í bíó, golf og elda okkur eitthvað gott já og nú auðvita sofa út líka;) Get ekki beðið;)

Takið endilega þátt í skoðunarkönnun, því þið ráðið nú úrslitum í henni;) veltur allt á ykkur:haha:

GÓÐA HELGI ALLIR SAMAN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 20:31:18 / sandra

Litla prinsessan

Já litla prinsessan þeirra Jóninu og Reynis er loksins komin í heiminn;) 14 merkur og 51 cm og ekkert smá falleg;)

Elsku Jónina, Reynir og Reynir Franz stóri bróðir innilega til hamingju með þessa fallegu prinsessu. (sandra)      

                                 TARA S'OL


tarasl.jpg
hér er litla prinsessan í fanginu á stóra bróður,,,, ohhh´og hún er í litla samfestingnum sem ég gaf henni ohhh  eru þau ekki sættttttt :***** elska ykkur í hengla :*** (Birgitta)


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 08:55:08 / binna

Lélegt lélegt lélegt !!!!!!!!

jæja þar sem að allir eru svona hrikalega áhugasamir um að kommenta, úff maður ég bara hef ekki undan að svara öllumm kommentunum úr síðustu færslu hehehehe my ass:lol:  Hvernig er þetta með fólk, það er nú allt í lagi að kommenta fyrst að fólk er nú að fara inn á bloggsíður hjá öðrum humm ? finnst ykkur það ekki? Allavega er það mín skoðun.....

En ég sjálf er komin með nýtt blogg stelpur mínar, eða réttara sagt er að vinna í því ennþá  binnan.bloggar.is

Kveð ykkur að sinni

Bjútíkvínið;):P


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 19:38:07 / binna

A cute Doc without a ring :)......hehehehe

jæja beyglur:lol:, hvað er að frétta? Ekkert slúður:klikk:? Mig alveg þyrstir í smá skúbb ha? Engin? en allavaega Djöfull:evil: er þetta orðið illa lélegt blogg, verð nú bara að segja það sko ;) Vantar allan Silvíu hittingin á þetta... illa leélegt sko ..... 8)  En það er nú svosem ekkert merkilegt að frétta af mínum rassi annað en það hann er ágætlega tanaður eftir Benidorm förina HEHEHE:P Sleikti sólina  eins og mér væri borgað fyrir það.....  Er byrjuð að vinna aftur og það mikið, en er að fara í helgarfrí...

Spurning um Djamm í kvöld.........

mig langar, hver vill vera vinur minn og koma á djammið ???

Nenni ekkki þessu pikkiríi , bara fylleríi HAHAHA:lol:

ég er svo oggisslea fyndin :haha:

Kveð að sinni

Binna Night ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 11:59:50 / sandra

Mánudagur!!!!!!!!

ohh það var allgjör snilld að þufa ekki að vakna í morgun og fara í vinnu, elska að vera í sumarfríi.

Var samt búin að ákveða að blogga ekkert í sumar en ástæðan allavega fyrir þessu bloggi er að ég nenni ekki að fara að taka til heima hjá mér þó að það sé brín nauðsyn svo að ég ákvað að kíkja aðeins í tölfu;) það er mun skárra að sitja hér á rassinum og horfa á draslið það kannski fer á meðan maður veit ekki;)

En allavega var þessi útilega allgjör snilld. Gott veður og fullt af skemmtilegu fólki. Kíktum í sundlaugina á laugum báða dagana. Ég hélt að fólk væri að verða eitthvað geðveikt þegar það fór að tala um að kíkja í sund á laugum í þessu góða veðri. Eina sundlaugin sem hafði farið í er eldgömul innilaug niður grafin í einhverjum kjallara slímug og ógeðsleg. En annað kom nú á daginn, ég ekki alveg að fylgjast með, en komin þessi glæsilega laug þarna og mæli ég eindreigið með henni. Fínt að fara í sunnudagsrúntin þanagað.

Ferð að líða að því að Jónkó mín komi með sitt annað barn, skrifuð inn 22. júli en miða við hvernig hún lítur út núna (ekki illa meint) þá kemur þetta örugglega fyrr og held ég að hún yrði mjög feigin orðin frekar þreytt;) Svo er náttúrulega búið að bætast í bumbuhópin hún Brísla mín. Og hlakka ég svo til að sjá hana með bumbu, hún verður svo sæt;) Til hamingju Birgitta og Palli;)

Jæja draslið mitt ætlar víst ekkert að hlaupa frá mér svo að ég verð að fara að græja þetta eitthvað........ Þangað til næst!!!!!!!!!!! Bæjó


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 21:28:44 / sandra

Sumarfrí !!!!!!!!!!

ó já á morgun fer ég loksins í langþráða sumarfríið mitt:D og er það alveg í heilan mánuð:D fyrsta skiptið sem ég tek mér almennilegt sumarfrí og get ég ekki beðið;) Ákvað að koma með eitt blogg, því miklil pressa er búin að vera hérna í kommentunum, og var ég líka mjög hissa að sjá að það eru búnir að fara 83 inn á síðuna í dag þrátt fyrir að engin hreifing hefur verið allan þennan mánuð8|

Af mér og mínum er bara allt frábært að frétta, skelltum okkur í útilegu með vinnunni minni um síðustu helgi og var það bara ágætt ekki meira en það. Fórum í Ásbyrgi á laugardeiginum í blíðskapar veðri. Brunuðum af stað heim um hádeigið á sunnudag nentum ekki að vera þarna legur af einni ástæðu sem ég ætla nú ekkert að vera að nefna, maður veit sko aldrei hverjir eru að detta inn á þessa síðu:D komum við í sumarbústanum hjá tengdó og vorum þar fram að kvöldmat og reddaði það alveg helginni.

Ætlum að gera aðra tilraun um helgina og skella okkur í skóginn, og getur það ekki klikkað, skemmtilegir ferðafélagar verða þarna með okkur og getur ekki annað en orðið stuð:haha:

Tók þátt í mínu fyrsta golfmóti á föstudaginn síðasta og var það alveg geggjað:haha: Það voru tveir saman í liði og vorum við Jóna félagar og gekk okkur bara glymrandi vel, skulum nú samt ekkert vera að tala um í hvað sæti vorum en allavega rústuðum við kvennaflokkinum;) reyndar vorum við einu kvennsurnar í keppnini en það kemur nú ekkert málinu við, er það nokkuð he he he

Ætlaði nú að skrifa alveg fullt í viðbót en það var að detta inn hjá mér gestur, alldrei friður he he he svo að ég verð að hætta í bili;) kem kannski með blogg aftur fljótlega, lofa samt engu:haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 21:50:42 / sandra

hæ hó

Jæja spússur þetta er nú að verða hálf lélegt blogg hjá okkur, fynnst ykkur það ekki??????

Er búin að vera á netinu heillengi að hendast milli bloggsíðna og reyna að stela einhverju fyndnu og flottu til að stela og setja inn á okkar síðu en ekki var árangurinn nú mikill. Svo að ég verð nú að rugla bara sjálf eitthvað hérna inn;)

Er búin að vera á ak í allan dag og er enn. Rebekka er farinn til pabba síns svo að ég get bara verið að slæpast eins og ég vil, fínt svona ein staka sinnum;)

Búið að vera geggjað veður í dag og ég sé geðveikt eftir að hafa ekki tekið sundfötin með og legið í sundi í allan dag og komið upp úr eins og karfi, en það er alltaf morgundagurinn og á víst að vera betra veður þá:haha:

Hitti Jónkó mína í dag og vá hvað bumban er orðin er orðin stór, og vá hvað hún er sæt svona ólétt, þrátt fyrir smá bjú he he he. En hún er nú alltaf svo sæt þessi elska hvor sem hún er ólétt eða ei:haha:

Jæja skora nú á hana Binnu babe að koma með svona skemmtilegt blogg eins og síðast, það hlýtur nú að hafa verið einhver eftir máli eftir þetta kvöld er það ekki. Viljum nú fá að vita eitthvað meira um þennan gaur he he he

Var að skoða síðuna okkar nánar áðan og hvað er að gerast fullt af einhverjum klám tenglum, hvað er í gangi gellur, hef samt lúmskan grun um hver setti þetta inn he he he     later!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 27 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 23:19:21 / binna

Hey þú oggislea töff....

Oh my god stelpur ég er með slúðrið þessa daganna:lol:, yes its true og það er svo drepfyndið að ég bara orðin mjó af hlátri....hehehehe:haha:
En sko okay byrjum bara á dúddanum sem allt í einu tók uppá því að hringja í mig hérna helgi eftir helgi :lol: jæja minns svaraði aldrei en svo okay bara ákvað svo loksins að svara og oh my god, takiði fram klútana því það eiga aeftir að koma tár heheheh:lol:
Hitti nebla einhvern gaur sem var stór og massaður, man reyndar ekkert hvernig hann leit út í framan:$ sem bað um nr mitt á síðasta djammi og svo kemur sagan ,,,,,,
Neinei en okay hann hringir og eitthvað sko" ég hérna var að fletta í símanum mínum og sá þá númerið þitt " yeah rigth örugglega búin að hringja 4- 5x áður en ókay en okay hann spjallaði eikkað smá og after that kom sms til sögunnar ...hehehehehe I'm laughing my ass off :lol: Heyrru svo bara sko var ég náttla að drepast úr forvitni og við Jónkó ákvaðum að ég myndi nú bara slá til og hitta dúddann og tékka á því hver þessi frægi gaur væri:P Aldrei að vita nema hann hefð getað kynt i frystinum mínum:klikk: neinei svo var ekki8) djókur núna ... Heyrru minns svo náttla búin að græja the cleavage, lét hana sjást þokkalega, reyna aðnota það sem maður hefur, gaurinn kom svo í heimsókn á fimmtudagskvöldið og ég náttla bjóst við þessum stóra massaða sem bth ég man ekki hvernig leit út í framan og fæ sennilega ekki að vita :evil: Þá kemur líka þessi litli dúddi og guð ég hugsaði "shitt who's that?" Mín var illa fljót að renna peysunni sem ég var í alveg upp í háls maður 8|  Crap:klikk: algjör andstæða við folann sem ég hélt að væri nú kannski að fara kinda ofninn minn... hehehehe en okay þurftið bara að vera á staðnum ... Ég get sagt ykkur það að það er ekki séns að ég sjálf hafi gefið þessum gaur nr mitt, ég bara trúi því ekki!!!!
En nenni ekki að pikka meir
Síjú later fuckersssss
Binna Stinna orðin heavy mjó áf hlátri.....:klikk:


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 19:44:45 / sandra

Föstudagur!!!!!!!!

ó já hvað ég var glöð þegar ég fattaði að það væri föstudagur í dag:haha: var með það í hausnum eins og örugglega margir aðrir að það væri mánudagur í dag, maður verður alveg ruglaður á þessum frídögum svona inn í miðri viku, en nei ég myndi nú alldrei vilja sleppa þeim:haha:

Geggjuð sólarblíða í dag, loksins!!!!!!!!! Við mæðgur skelltum okkur í sund eftir vinnu og leikskóla, og vorum svo bara grand á því og fórum tvær saman út að borða:haha: Ferðini var heitið í Jónsabúð á Grenivík:haha: flottasta og eina veitingarstaðinn hér í sveit ef veitngarstað má kalla:haha: En allavega fannst okkur þetta voða kósý.

Heyrði aðeins fréttir í útvarpinu í dag og mér krossbrá þegar ég heyrði fréttina frá Akureyri8| Hvað er eiginlega í gangi, og hvað er eiginlega að fólki. Klippa framan af putta af einhverjum með garðklippum..................!!!!!!!!!Ég sem hélt að þetta gerðist bara í bíómyndum. Nei maður hefur kannski heyrt af svona löguðu í borginni stóru en þetta er nú komið full nálægt manni þegar þetta er komið inn á Akureyri. Hvað finnst ykkur?????????? Það liggur við að maður fari bara og flytji á einhverja eyði eyju til að forðast þessa geðveiki. Ef ég gæti ráðið einhverju myndi ég vilja að Rebekka mín yrði alltaf litil og saklaus og þyrfi bara ekkert að fullornast, svo að ég gæti alltaf passað hana og vita af henni, en svo einfalt er það víst ekki.

Er að fara að skella mér út af borða á morgun í BÆ ÓTTANS, ferðini er heitið á Greifann, saumaklúbbnum minn er að fara, og verður það eflaust geðveikt gott, Greifinn klikkar alldrei. Enginn pabbahelgi hjá mér núna, því Jói er að kanna sjómannslífið í Grímsey þessa dagana og varð ég því að redda pössun. Barnapían var nú fljót að gefa sig fram og ætlar hann Hörri minn að gera frumtilraun sína að vera með skottuna þetta kvöld, og efast ég nú ekki um að það verði stuð hjá þeim, því að hann er nú í mesta uppáhaldi hjá henni þessa dagana eða bara alltaf:haha:Gæti ekki verið betra.

Jæja ætla að fara að setja mig í stellingar fyrir One tree Hill, má ekki missa af því:haha: Endilega takið svo þátt í skoðunarkönnuni.

Þanngað til næst bæjóóóóóóó:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 21:15:29 / sandra

Veðurguðirnir!!!!!!!!!!!!

já veðurguðirnir hljóta nú eitthvað að vera ruglaðir í ríminu þessa dagana. ´Eg sem hélt að sumarblíðan væri komin, en nei þá snjóar bara og snjóar og á að gera það alla vikuna, gleðilegt sumar hvað??????

Finnlandarskrímslin komu, sáu og sigruðu þokkalega á laugardaginn:haha: mér og mínum til mikilla ánægu. Meira að segja mamma gamla hélt með þeim líka8| Svo var ég einnig mjög glöð með framistöðu litháen, 6 sæti varð það. Ekki það að þetta hafi verið eitthvað snilldar lag, bara hvernig mótökurnar voru, þvílíkt púað á þá en þeir létu það nú ekki fipa sig. Mér fannst þetta aðalega fyndið lag:haha: Um að gera að hafa eitthvað svona til að hressa upp á þetta:haha:

Stór atburðir að gerast á skjá 1 í júní:haha: Ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum þegar ég heyrði að þeir eru að fara að sýna mína uppáhals gelgjuþætti mína Beverly Hills 90210 og Melrose place alla gömlu þættina frá upphafi:haha: get ekki beðið. Tók þessa þætti alla upp hérna í gamla daga og eru þær spólur annað hvort týndar eða falskar og ónýtar eftir of mikla spilun. Var að hugsa um að taka þá alla upp aftur en veit nú ekki hvað ég geri, efast um að maður nenni að horfa eins mikið á þetta eins og í gamla dag, en kemur allt í ljós.

Ekki meira bull í dag.................... bið að heilsa..........!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 17:54:20 / sandra

Silvía Nótt.........

jæja ekki gekk það í þetta sinn hjá okkur íslendingum:cry: Hvað ætli við eigum þá að reyna næst????? Kannski bara Nælon...... hver veit.

En allavega fannst mér þetta eitthvað hálgert klúður í gær, Silvía ekki alveg að höndla þetta8| var andstutt og hvað eina, kannski nett stress í gangi, skiljanlegt þegar bara var púað á greijið. En held að það hafi samt ekki skipt máli, þó hún hefði gert þetta alveg fullkomið þá eru kannski ekki allir að fatta þennan húmor hjá okkur íslendingum þetta árið:$ en það verður bara að hafa það. Ég er búin að finna mér land til að halda með og hverjir eru það aðrir en Finnlandarskrímslin...... Fannst þeir helvíti flottir og auðruvísi. ´AFRAM FINNLAND:haha:

En út í allt annað helgin fram undan og Rebekka Sól farin í orlof til Selfoss. Fáum næturgest yfir helgina, bróðir hans Hörra ætlar að koma og verður bara haft rólegt, grilla og kannski drukkin smá bjór. Pöbbinn á Grenó opinn eftir júróvíson og hver veit nema maður kíki þangað og hitti fólkið.

Æji veit bara ekkert hvað ég á að bulla hérna núna en allavega góða helgi öll sömul, hef kannski eitthvað skemmtilegra að segja næst:haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 21:21:50 / sandra

Óvissuferð!!!!!!!!!!!

Skellti mér í óvissuferð með gamla bekknum mínum í gær og var þetta sannarlega óvissuferð fyrir mér því að ég var nú alveg búin að ákveða það að við værum að fara á sjó til Hríseyjar eða eitthvað svoleiðis en það var nú alldeilis ekki!!!!!!!!

 Mætt var heim til Vidda Jóns kl 12:30 og þar var tekið á móti okkur með Tóbas skoti og var það ekki einfalt skot heldur þrefalt!!!!! Strax var byrjað að skella í sig og var maður orðin ansi léttur strax. Svo var okkur öllum staflað inn í pallinn á bílnum hans Sigga Bald og ferðinni heitið í troðaran upp á Kalbak. Já snjótroðarinn er orðin ansi góður vinur minn þessa dagana, þetta var þriðja ferðin mín í þessari viku, ekkert af því. Að þessu sinni var snjóbrettið ekki með í för heldur renndum við okkur öll niður á snjóþotu og var það alljör snilld, held samt að ég hafi alldrei verið jafn marin út um allan líkaman eins og eftir þessa ferð en það var nú bara allveg þess virði.

 Næst var ferðini heitið upp í skóla þar sem Böddi gamli skólastjóri tók á móti okkur og las fyrir okkur gömul ljóð sem við höfðum víst samið í 9 og 10 bekk, allgjör sind að engin af okkur sé ljóðskáld í dag!!!!!!! svo las hann líka hluta af útskriftarræðuni okkar, einnig skipti hann okkur í þrjú lið og lét okkur taka smá próf úr Gísla Súrsyni, Gretti og smá málfræði og kom þetta mis vel út.

 Svo fórum við niður á bryggju þar var búið að koma kari fyrir í sjónum og farið var í keppni hver gæti skotið golfkúlu ofan í en engin var svo góður að hitt!!!!!!!!

 Svo var það heitipotturinn heima hjá Vídda, því flestir voru nú blautir og kaldir eftir fjallaferðina og gott að hlýja sér og slaka á með bjór í hendi.

 Næst fóru allir til sína heima og fóru í sturtu og fínu fötin, mætu svo til Helgu og gæddum okkur á pizzum, horfðum á gömlar spólur frá okkur að leika í vorskemmtun og svo var spilað og sungið í singstar. Kíktum svo á pöbbin hér í bæ, þá var hópurinn heldur betur farin að þynnast´, tókum singstarið með og fórum við Hörri á kostum saman og tókum Helgu og Völgu með stæl, erum að hugsa um að fara í bransan og syngja dúett!!!!!! he he he

Vorum komin heim um 1:30 sem var bara mjög gott var orðin mjög þreytt eftir daginn, eitthvað af liðinu fór víst í bæinn að djamma en ég var nú ekki alveg í stuði til þess.

 Jæja nóg bull í bili, Birgitta mín hvernig væri að þú myndir nú koma með eitt gott blogg svona upp á gamla tíma he he he


» 15 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 20:56:09 / sandra

Góða kvöldið!!!!!!!

Jæja verður maður ekki að hafa sig allan í því að halda þessari síðu við, þýðir víst ekki að gleyma sér í bloggleysi er það nokkuð.

Er að fara á morgun aðra ferð með snjótroðaranum en að þessu sinni er ferðinni haldið alveg upp á Kalbak, og er það fagur hópur úr pharmarctica að fara ásamt þremur þjóðverjum. Og ætlar gellan að reyna að sýna gamla takta og taka snjóbrettið með8| veit nú ekki alveg hvernig það endar annað hvort með bros á vör og nokkra marbletti á rassinum eða fótbrotinn í börum en það verður bara að koma í ljós:haha:

Svo er helgin á nánd og þá ætlar gamlibekkurinn minn úr Grenivíkurskóla að hittast og gera sér glaðan dag:haha: Efast ég nú ekki um að það verði stuð. Þetta verður óvissuferð svo að ég veit nú ekkert um hvað verður gert, fræði ykkur um  það eftir helgi en allavega verðu bjór í hönd og fullt af skemmtilegu fólki svo að þetta getur ekki orðið annað en tær snilld:haha:

Við hjónakornin versluðum okkur gasgrill í gær eða Hörri keypti það en ég náttúrulega eigna mér allt sem hann kemur með hingað í sveitinna, hvað annað. Grilluðum steik í gær og hamborgara í kvöld allgjör snilld:haha: >Maður verður örugglega komin með nett ógeð af grillmat eftir sumarið en það er nú í góðu lagi:haha:

Svo erum við búin að fá staðfest að við fáum nýja íbúð um miðjan ágúst eða lok veit ekki alveg. Þá verðum við Guðni bróðir orðin nágrannar á ný, illa fínt hægt að labba bara á sokkunum yfir, gæti ekki verið betra.

Jæja nóg rugl í bili:haha: Ætla að reyna að græja nýja skoðunarkönnun:haha: sjáumst!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15